Undirhlíðanáma, breyting á deiliskipulagi vegna Sandskeiðslínu 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1780
15. febrúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24.jan. sl. Frestað á fundi bæjarstjórnar 1.febr. sl.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 23. nóvember 2016 var samþykkt breyting á deiliskipulagi Undirhlíða ásamt umhverfisskýrslu sbr. 7. gr laga um umhverfismat áætlanna nr. 105/2006 og að meðferð málsins yrði lokið skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdarfrestur er liðinn og bárust athugasemdir. Lögð fram umsögn um athugasemdirnar. Ívar Bragason lögmaður hjá Hafnarfjarðarbæ mætti til fundarins vegna þessa máls. Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi umsagnir við athugasemdum og skipulagið fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Undirhlíða og að málinu verði lokið í samræmi við 1. mgr. 42. gr. laga nr. 123/2010."
Tillaga um að fresta afgreiðslu málsins til næsta bæjarstjórnarfundar, sem verður haldinn eftir tvær vikur, samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.
Svar

Til máls tekur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.

Til máls tekur til máls bæjarfulltrúi Einar Birkir Einarsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Undirhlíða og að málinu verði lokið í samræmi við 1. mgr. 42. gr. laga nr. 123/2010.