Vesturvangur 46 stækkun
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 606
4. október, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 14. september sl. vísaði eftirfarandi erindi til skipulags- og byggingarráðs: Fyrir hönd eigenda leggur Sunna Dóra Sigurjónsdóttir arkitekt inn fyrirspurn vegna stækkunar á húsinu við Vesturvang 46. Stækkun er bakatil á húsi og fer yfir byggingarlínu. Óskað er eftir svari frá skipulags- og byggingarfulltrúa hvort hægt sé að fallast á stækkun eins og meðfylgjandi uppdráttur/skissa sýnir.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir mögulega stækkun hússins að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.