Hverfisgata 4b, fyrirspurn
Hverfisgata 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 615
7. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju, en skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa breytingu á gildandi skipulagi þann 13.12. s.l. Við yfirferð á gögnum málsins kom í ljós að bifreiðageymsla sem samþykkt var 22.10.2008 og gerð var fokheld 20.01.2009, var að fullu lokið en ekki lá fyrir lokaúttekt.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti að fresta auglýsingu deiliskipulagsins á fundi sínum 10.01.2017 með hliðsjón af nýjum upplýsingum í málinu. Lokaúttektarvottorð var gefið út 24.01.2017. Nýr uppdráttur deiliskipulagsbreytingar, dags. 06.01.2017, lagður fram.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir á ný framlagða tillögu og auglýsingu hennar með vísan til 1. mgr. 41. gr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121163 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033499