Linnetsstígur, stígur að 9b
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 649
15. febrúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti á fundi sínum þann 24.08. s.l., framkvæmdaleyfi vegna stígs frá Linnetsstíg að Linnetsstíg 9b. samanber 13 gr. laga nr. 123/2010. Með bréfi dags. 07.09. 2016, kærðu eigendur Linnetsstíg 9a, áðurnefnt framkvæmdaleyfi. ÚUA féllst á rök kærenda samanber bréf frá 25.10.2016. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum 01.11.2016 að stígur frá Linnetsstíg að Linnetsstíg 9b, samanber tillögu að mæliblaði dags. 12. 2013 með seinni tíma breytingum, yrði grenndarkynntur með vísan til 1. mgr. 44 gr. skipulagslaga. Grenndarkynning fór fram frá 12.01.2017-13.02.2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir framkvæmdaleyfi vegna stígs í samræmi við 13 gr. laga nr. 123/2010.