Aðalskipulag Hafnarfjarðar breyting v. vatnsverndarmarka til samræmis við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1775
23. nóvember, 2016
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð SBH frá 15.nóv. sl. Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 11. ágúst var samþykkt breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05. 2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar og hún auglýst í samræmi við 31. gr. laga 123/2010. Fyrirliggur jákvæð umsögn Svæðisskipulags Höfuðborgarsvæðisins. Skv. ákvæðum skipulagslaga 2. mgr. 30. gr þarf að kynna tillöguna áður en hún er samþykkt til auglýsingar. Búið er að kynna lýsingu fyrir almenningi og fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunnar. Umhverfisskýrsla fylgir tillögunni.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 36. gr skipulagslaga 123/2010. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar, og hún auglýst í samræmi við 1. mgr. 36.gr. laga 123/2010."
Svar

Til máls tekur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum,
breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar, og hún auglýst í samræmi við 1. mgr. 36.gr. laga 123/2010