Land Geymslusvæðis ehf, losun úrgangsefna
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 401
9. ágúst, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi Skipulags- og byggingarráðs þann 2. júni 2015 var eftirfarandi erindi á dagskrá: Geymslusvæðið sækir hér með um leyfi til að taka á móti jarðvegsefnum til endurvinnslu. Einnig eru hugmyndir uppi um að taka á móti mold, fleyggrjóti, og grús, efni þetta er hugsað til að taka lóðir okkar í hæðir. Skipulags- og byggingarráð óskaði frekari upplýsinga um umhverfisáhrif vinnslunnar og mengunarvarnir. Lagt fram svar Ástvaldar Óskarssonar f.h. Geymslusvæðisins dags. 18.05.15.
Niðurstaða fundar; Skipulags- og byggingarráð telur upplýsingarnar ekki fullnægjandi og ítrekar fyrri bókun. Að fenginni ábendingu og eftir skoðun á staðnum kom í ljós að framkvæmdir við losun voru hafnar án tilskyldra leyfa. Með bréfi dags. 03.08.2016 var lóðarhafa gert skylt að stöðva framkvæmdir.
Svar

Skipulags- og byggingarráð vísar eftirfarandi í bæjarráð:
Með vísan til 53. gr. laga 123/2010 staðfestir sveitarstjórn stöðvun þessara framkvæmda.

Skipulag- og byggingarráð ítrekar bókun sína frá 5. mai 2015 Jafnframt tekur ráðið undir það sem kemur fram í bréfi skipulagsfulltrúa. Skipulags- og byggingarráð beinir því til umhverfis- og skipulagsþjónustu að losun malbiksúrgangs á þessu svæði verði kærð til lögreglu og Umhverfisstofnunar.