Vellir, stofnræsi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 641
23. janúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 04.10.2017 var samþykkt að fara í framkvæmdir við stofnræsi við Grísanes. Gera þarf breytingar á deiliskpulagi viðkomandi reita miðað við legu stofnræsis.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti með 2 atkvæðum að unnið verði að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulagi reita sem lega stofnræsis varðar í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnið verði að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna legu stofnræsis Valla í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna sitja hjá við afgreiðslu málsins.