Reykjanesbraut, skilti, athugasemd og fyrirspurn
Reykjanesbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 612
11. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur ábending um að verið sé að endurnýja gamalt skilti við Reykjanesbraut. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 18. ágúst 2004 var þessu sama skilti hafnað á þeim forsendum að veitt hafði verið bráðabirgðaleyfi á sínum tíma og það þyrfti að sækja um endurnýjun leyfis og skiltið væri innan veghelgunarsvæðis vegagerðarinnar. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 7. mars 2005 var sama erindi tekið fyrir og því hafnað á sömu forsendum.
Svar

Byggingarfulltrúi beinir því til eiganda skiltisins að fjarlægja það enda ekki heimild fyrir skilti á þessum stað skv. samþykkt um skilti sem samþykkt var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 29. mars 2012. Einnig er vísað í áðurnefndar afgreiðslur vegna sama erindis.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197313 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121182