Einivellir 1-3. Fyrirspurn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 613
18. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa þann 17. febrúar sl. vísaði eftirfarandi erindi til skipulags- og byggingaráðs: Dverghamrar ehf. sækja með umsókn dags 10.02.2016 um að byggja fjölbýlishús með 47 íbúðir samkvæmt teikningum Jóns Guðmundsonar.Skipulag- og byggingarráð heimilaði lóðarhafa að vinna deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað og í samræmi við 1. mgr. 43 gr. laga 123/2010. Erindið var auglýst frá 01.04.2016-13.05.2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Með vísan til 1. mgr. 2.gr. samþykktar um afgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 767/2005 er samþykkt að ljúka málinu í samræmi við 2. mgr.43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.