Opnunartími sundlauga
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1804
25. apríl, 2018
Annað
Fyrirspurn
Til umræðu.
Svar

Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson. Til andsvars kemur Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri.

Fundarhlé kl. 19:14.

Fundi framhaldið kl. 19:39.

Til máls öðru sinni tekur Gunnar Axel Axelsson og ber jafnframt upp svohljóðandi spurningar:

"Hvers vegna segir í greinargerð með fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 að festa eigi í sessi lengdan opnunartíma sundlauga að sumri ef í reynd á að bjóða uppá opnunartíma sumarið 2018 sem er umtalsvert minni en árið 2017?

Hvers vegna hefur bæjarráð ekki verið upplýst um þær skerðingar á starfskjörum starfsmanna sundlauga sem fyrirhugaðar breytingar á opnunartíma hafa haft í för með sér?"