Skarðshlíð aðalskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3440
11. ágúst, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lagt fyrir bæjarráð í umboði bæjarstjórnar:
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar dags. 9. júlí sl. var eftirfarandi mál til umfjöllunar og afgreiðsla þess var:
16011204 - Skarðshlíð aðalskipulagsbreyting Með vísan til bréfs Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2016 og lagfærðra aðalskipulagsgagna dags. 30. maí 2016 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 08.06.s.l.,að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga. Í breytingunni felst að hluti af svæði S33 samfélagsþjónusta austan Hádegisskarðs milli Hraunskarðs og Apalskarðs breytist í íbúðarbyggð. Jafnframt samþykkti bæjarstjórn að vinna og auglýsa samhliða skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar, sem samþykkt var 10. júní 2013. Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Ásvallabraut, Stuðlaskarði, Hraunskarði, Hádegisskarði og opnu svæði sem merkt er HVa9 á gildandi aðalskipulagsuppdrætti. Tillaga að breyttu aðalskipulagi var auglýst frá 14. júní til 2. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breyttan aðalskipulagsuppdrátt af svæði S33 samfélagsþjónusta austan Hádegisskarðs milli Hraunskarðs og Apalskarðs, sem breytist í íbúðarbyggð".
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir breyttan aðalskipulagsuppdrátt af svæði S33 samfélagsþjónusta austan Hádegisskarðs milli Hraunskarðs og Apalskarðs, sem breytist í íbúðarbyggð

Fundarhlé kl. 09:30, fundi framhaldið kl. 09:34.

Framlögð tillaga er samþykkt með 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðistæðisflokks og Bjartrar framtíðar. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.

Fulltrúar Samfylkingar ásamt áheyrnafullrúa Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi bókun: Með því að sitja hjá við afgreiðslu málsins viljum við sýna andstöðu okkar við ákvörðun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar að slá útaf borðinu þá vinnu og fjármuni sem farið hafa í hönnun á hjúkrunarheimili í Skarðshlíð og hafa orðið til þess að nýtt hjúkrunarheimili sem átti að taka til starfa í byrjun árs 2016 hefur ekki enn risið. Við ítrekum fyrri bókanir okkar um málið, m.a. í bæjarstjórn þann 3. febrúar og 8. júní sl.

Fundarhlé kl. 09:37, fundi framhaldið kl. 09:41.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar undrast hjásetu minnihlutans í ljósi þess að málið hlaut einróma samþykki þvert á flokka í fyrradag í skipulags- og byggingarráði. Jafnframt er vísað til bókunar í bæjarstjórn 8. júní sl.