Áramótabrenna 2015
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 590
2. desember, 2015
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi Knattspyrnufélagsins Hauka dags. 10. nóvember 2015 þar sem ranglega var skráð á síðasta fundi staðsetning brennunnar. Ný staðsetning sést á meðfylgjandi gögnum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi fallast á að veita umbeðið leyfi með fyrirvara um samþykki slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.