Útboð á endurskoðun og kæra Enor vegna útboðs
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3420
19. nóvember, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga um að Pricewaterhouse Coopers taki við sem endurskoðandi Hafnarfjarðarbæjar af KPMG. Einnig sagt frá kæru vegna framkvæmdar á örútboði vegna endurskoðunar hjá Hafnarfjarðarbæ (nr. 20148, Endurskoðun Hafnarfjarðarbæjar). Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs kom á fundinn.
Svar

Bæjarráð samþykkir í kjölfar útboðs að leggja til við bæjarstjórn: "Pricewaterhouse Coopers taki við sem endurskoðandi Hafnarfjarðarbæjar frá og með næstu áramótum."