Útboð á endurskoðun og kæra Enor vegna útboðs
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1756
25. nóvember, 2015
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð BÆJH frá 19.nóv. sl. Lögð fram tillaga um að Pricewaterhouse Coopers taki við sem endurskoðandi Hafnarfjarðarbæjar af KPMG. Einnig sagt frá kæru vegna framkvæmdar á örútboði vegna endurskoðunar hjá Hafnarfjarðarbæ (nr. 20148, Endurskoðun Hafnarfjarðarbæjar). Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs kom á fundinn.
Bæjarráð samþykkir í kjölfar útboðs að leggja til við bæjarstjórn: "Pricewaterhouse Coopers taki við sem endurskoðandi Hafnarfjarðarbæjar frá og með næstu áramótum."
Svar

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu með 10 samhljóða atkvæðum