FH Kaplakrika, ábending vegna ljósaskiltis á girðingu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 587
11. nóvember, 2015
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir ábending lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Svar

Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 8. apríl 2015 heimilaði skipulags- og byggingarfulltrúi uppsetningu markatöflu innan lóðar FH við Kaplakrika en vísaði jafnframt í samþykkt um skilti í lögsögu Hafnarfjarðar varðandi blikk og ljósmagn.

Skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi ítreka fyrri bókun og óska eftir því við hönnuð og FH að bregðast við.

Varðandi ábendingu um of sterka birtu af nýjum umferðarljósum er því máli vísað til undirbúningshóps umferðarmála.