Flensborgarhöfn, aðgengi að svæðinu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 642
9. febrúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Önnu Maríu Karlsdóttur o.fl. f.h. Íshúss Hafnarfjarðar o.fl. dags. 01.02. 2018 varðandi aðgengi að svæðinu við smábátahöfnina, gamla íshúsið og Drafnarhúsið. Sambærilegt erindi var til umfjöllunar í október 2015.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfullrúa að skoða aðal- og deiliskipulag svæðisins með hliðsjón af gangandi umferð á svæðinu.