Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1760
Annað
Fyrirspurn
14.liður úr fundargerð SBH frá 9.febr. sl. Tekið fyrir að nýju. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 8. september sl. var umhverfis- og skipulagsþjónustu falið að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi til samræmis við samþykktar byggingarnefndarteikningar. Send var út grenndarkynning með athugasemdarfresti til 16. nóvember sl. Athugasemdir bárust. Haldinn var íbúafundur í kjölfarið til nánari útskýringar. Lögð fram drög að svörum vegna athugasemda.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að ljúka deiliskipulagsbrreytingunni í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breyttu deiliskipulagi Vesturgötu 18- 20 og að málinu verði lokið í samræmi við 1. mgr. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Tillagan er samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.