Hellubraut 5 og 7, deiliskipulag
Hellubraut 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 601
28. júní, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. Gunnar Hjaltalín, Sævangi 44, Hafnarfirði, óskar eftir að deiluskipulagi er varðar lóðina Hellubraut 7, verði breytt og heimild veitt til þess að rífa núverandi hús og byggja nýtt í staðinn. Umsækjanda var heimilað að vinna breytingu á deiliskipulagi lóðanna á fundi ráðsins 14.6. sl.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa framlagða deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Jafnframt samþykkir skipulags- og byggingarráð að næsta nágrenni verði kynnt skipulagstillagan sérstaklega með bréfi.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120817 → skrá.is
Hnitnúmer: 10032501