Launakjör bæjarstjóra, fyrirspurn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3413
13. ágúst, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn Samfylkingar og VG: "Hver eru samanlögð heildarlaun og launatengd gjöld vegna embættis bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar á fyrstu 6 mánuðum ársins 2015, samanborið við sama tímabil árið 2014?"
Svar

Lagt fram svar við framlagðri fyrirspurn.

Fulltrúar Samfylkingar og VG leggja fram eftirfarandi bókun:
"Eins og fram kemur í framlögðum gögnum hefur heildarlaunakostnaður vegna embættis bæjarstjóra aukist um 28% á einu ári eða um 4,6 milljónir króna á ársgrundvelli."