Krýsuvík, stæði fyrir súpubíl
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 606
30. mars, 2016
Annað
‹ 7
5
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju: Jónína Gunnarsdóttir Farmer´s Soup sótti um þann 29. september 2015 um leyfi fyrir staðsetningu matarbíls í Krýsuvík 15. maí - 15. september 2016. Gefið var leyfi til reynslu júlí 2015.
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísað erindinu til umsagnar Reykjanesfólksvangsnefndar og menningar- og ferðamálanefndar. Jákvæðar umsagnir hafa borist.
Svar

Byggingarfulltrúi heimilar staðsetningu súpubílsins á umræddu tímabili en vekur athygli á að ekkert aðgengilegt rafmagn er í Seltúni.
Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Þar sem Krýsuvíkursvæðið er innan Reykjanesfólkvangs sem er friðlýstur skv. lögum um náttúruvernd verður sérstaklega að gæta þess að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum.

Vakin er athygli á að svæðið liggur við Seltún sem er mjög virkt sprengigíga- og borholusvæði. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessarar starfsemi.
Allt rusl og drasl skal fjarlægt eftir daginn og svæðið skilið eftir í viðunandi ástandi.