Krýsuvík, stæði fyrir súpubíl
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 620
25. apríl, 2017
Samþykkt
Svar

Skipulags- og byggingarráð heimilar staðsetningu súpubílsins á umræddu tímabili en vekur athygli á að ekkert aðgengilegt rafmagn er í Seltúni.
Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Þar sem Krýsuvíkursvæðið er innan Reykjanesfólkvangs sem er friðlýstur skv. lögum um náttúruvernd verður sérstaklega að gæta þess að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum.
Vakin er athygli á að svæðið liggur við Seltún sem er mjög virkt sprengigíga- og borholusvæði. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessarar starfsemi.
Allt rusl og drasl skal fjarlægt eftir daginn og svæðið skilið eftir í viðunandi ástandi.
Jafnframt felur skipulags- og byggingarráð umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna tillög að skilmálum er varðar starfsleyfi og fyrikomulag á tímabundinni ferðamannaþjónustu við Krýsuvík.