Stjórn Hafnarborgar - 332
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3410
2. júlí, 2015
Annað
‹ 13
14
Svar

Lögð fram fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 24. júní sl. 14.1. 1004383 - Hafnarborg, framtíðarsýn Lögð fram til afgreiðslu stefna Hafnarborgar 2015-2020.

Sú stefna sem nú er samþykkt af hálfu stjórnar hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið og hafa margir komið að mótun hennar, jafnt stjórnendur sem fulltrúar annarra menningarstofnana og íbúa. Undirbúningur vinnunnar hófst 2011 og byggði á eldri stefnu. Sett fram skýr stefna og framtíðarsýn fyrir menningar- og listamiðstöðina Hafnarborg og lögð áhersla á að öll starfsemi Hafnarborgar sé markviss og í sátt við hagsmunaaðila.

Í stefnunni er litið til samfélagslegs hlutverks safna og annarra menningarstofnana og lögð áhersla á gildi sem gera stofnuninni fært að mæta síbreytilegum aðstæðum og í raun vera í fararbroddi nýsköpunar á starfssviði hennar. Horft er til þeirra grunngilda sem stofnunin byggir á, ekki síst til gjafabréfs þeirra hjóna Sverris Magnússonar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur.

Á grundvelli stefnunnar hefur jafnframt verið tekinn saman aðgerðalisti yfir einstök verkefni og þau skilgreind nánar. 14.2. 1309279 - Hafnarborg - Ráðning forstöðumanns Rætt um væntanlega ráðningu nýs forstöðumanns Hafnarborgar og drátt sem orðið hefur á því að staða sé auglýst. Sviðsstjóri upplýsti að ráðgert væri að vinna að ráðningunni með aðstoð ráðningarskrifstofu. Stjórnin leggur áherslu á að henni sé haldið upplýstri um gang mála. 14.3. 0905207 - Hafnarborg, viðhald og framkvæmdir Framkvæmdir eru hafnar sem miða að því að nýta rými safnsins betur í þágu gesta, einkum barna og fjölskyldna. Vonast er til að þeim ljúki í júlí. Verkefnið nýtur stuðnings úr Safnasjóði. 14.4. 1102237 - Hafnarborg, önnur mál Umræður spunnust um listaverk í opinberu rými og mikilvægi þess að skýrt verklag sé haft að leiðarljósi.