Sörli, ný reiðleið við Hvaleyrarvatn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 380
22. september, 2015
Annað
Svar

9. 1506279 - Sörli, ný reiðleið við HvaleyrarvatnHelga Stefánsdóttir forstöðumaður umhverfis- og hönnunardeildar óskar með bréfi dags. 11. september 2015 eftir framkvæmdaleyfi við lagningu reiðstíga við Hvaleyrarvatn. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði erindinu til Skipulags- og byggingarráðs.Skipulags- og byggingarráð samþykkir að veita umbeðið framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. grein skipulagslaga nr. 123/2010 enda er reiðleiðin í samræmi við gildandi aðalskipulag.

Jafnframt er óskað eftir að girðing sem er á bæjarlandi verði fjarlægð samhliða framkvæmdum við reiðleiðina.