Flatahraun 13, byggingarleyfi
Flatahraun 13
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 567
24. júní, 2015
Annað
Fyrirspurn
Festi hf sækir 04.06.15 um byggingarleyfi til að reisa nýbyggingu fyrir verslunina Krónuna ásamt tveimur leigurýmum fyrir aðra þjónustu. Samkvæmt teikningum G.Odds Víðisonar dag.01.06.15 Nýjar teikningar bárust þann 16.06.15.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skriflegt byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-5 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. M.a. lóðaruppdráttur í samræmi við deiliskipulag.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
5. Skráð hefur verið í gagnasafn Mannvirkjastofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði laga þessara.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120495 → skrá.is
Hnitnúmer: 10026449