Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, tillaga um endurskoðun rekstrarsamninga
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3409
18. júní, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga frá þingi ÍBH 25. apríl 2015 þar sem þingið hvetur Hafnarfjarðarbæ til að endurskoða og hækka rekstrar- og styrktarsamninga við ÍBH og aðildarfélög ÍBH.
Svar

Bæjarráð vísar erindinu í þá vinnu sem framundan er við almenna endurskoðun á samningum við íþróttafélög í bænum í kjölfar framkominnar skýrslu R3 ráðgjafar.