Reykjavíkurvegur 60, veitingahús, rekstrarleyfi, beiðni um umsögn
Reykjavíkurvegur 60
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3413
13. ágúst, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðisins dags. 29. 5. þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjað rekstrarleyfi ofangreinds aðila.
Svar

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki III að Reykjavíkurvegi 60 í Hafnarfirði. Hins vegar verði heimild til lengri opnunartíma, til kl. 04:00 aðfaranótt laugardags, sunnudags eða almenns frídags aðeins veitt til eins árs þar sem þar er um að ræða undanþágu frá ákvæðum Lögreglusamþykktar Hafnarfjarðarkaupstaðar.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122155 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037672