Stofnun grunnskóla, fyrirspurn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3436
14. júní, 2016
Annað
Fyrirspurn
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna óska svara við eftirfarandi fyrirspurnum: Hvernig var staðið að undirbúningi að gerð þjónustusamnings við þriðja aðila um framkvæmd umræddrar þjónustu fyrir hönd sveitarfélagsins og hvernig voru skilyrði laga um opinber innkaup uppfyllt, m.a. um jafnræði og tækniforskrift? Tilkynnti Hafnarfjarðarbæjar tímanlega og með formlegum hætti um hvaða þjónustu sveitarfélagið vildi kaupa af þriðja aðila, sbr. ákvæði laga um opinber innkaup, jafnvel þó svo að ekki hafi verið um að ræða eiginlegt útboðsferli? Hvar var sú tilkynning sett fram, hvenær og hvert var innihald hennar með tilliti til þeirra skilyrða og viðmiða sem horft var til við mat og ákvörðun um samstarfsaðila og ætlast er til að opinberir aðilar upplýsi um áður en slíkir samningar eru gerðir? Þrátt fyrir að fella megi gerð þjónustusamnings um rekstur skóla undir undanþágukvæði laga um opinber innkaup og ekki sé gert ófrávíkjanleg krafa um að útboð sé viðhaft, kom ekki til greina að viðhafa engu að síður slíkt ferli? Í ljósi þess að ekkert eiginlegt innkaupaferli virðist hafa átt sér stað fyrir gerð umrædds þjónustusamnings, telur bæjarstjóri það eðlileg og jafnvel ákjósanleg vinnubrögð við gerð samninga af þessu tagi sem fjalla um viðskipti upp á tugi og jafnvel hundruða milljóna króna og umtalsverða hagsmuni væntanlegra þjónustunotenda að semja við aðila eingöngu á grundvelli innsendra erinda frá óstofnuðu hlutafélagi, jafnvel þó svo að viðkomandi aðilar hafa aldrei komið að slíkum rekstri áður?