Eskivellir 11, stöðvun framkvæmda
Eskivellir 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 562
18. maí, 2015
Annað
Fyrirspurn
Haghús ehf sækir 22.04.15 um að byggja fjölbýlishús á sex hæðum með 39.íbúðum samkvæmt teikningum Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags.15.04.2015. Nýjar teikningar með stimpli slökkviliðs bárust 18.05.15. - Einnig er sótt um takmarkað byggingarleyfi fyrir sökklum og lögnum í grunn að Eskivöllum 11.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skriflegt byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-5 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt. Leyfilegt er þó að hefja framkvæmdir við sökkla og lagnir í grunni þegar þeir uppdrættir hafa verið yfirfarnir og samþykktir í samræmi við 2.4.6 grein byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. M.a. lóðaruppdráttur í samræmi við deiliskipulag.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
5. Skráð hefur verið í gagnasafn Mannvirkjastofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði laga þessara.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204196 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085161