Kvartmíluklúbburinn, breyting á deiliskipulagi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 381
6. október, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Kvartmíluklúbburinn og Ökukennarafélag Íslands óskuðu eftir að breyta deiliskipulagi á athafnasvæði sínu í Kapelluhrauni. Skipulags- og byggingarráð samþykkti að breytingin yrði auglýst skv. 43.gr. skipulagslaga og óskaði í kjölfarið eftir því að skipulags- og byggingarsvið myndi skilgreina nánar lóðir á uppdrætti og gera tillögu að svörum við athugasemdum. Tillaga að lóðarblaði liggur fyrir. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðablaði.

Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að afgreiðslu verði lokið skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætti á fundinn vegna þessa máls.