Iðnskólinn í Hafnarfirði og Tækniskólinn, sameining
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1743
15. apríl, 2015
Annað
Fyrirspurn
1. liður úr fundargerð BÆJH frá 13. apríl sl. Tekið fyrir að nýju. Ársæll Guðmundsson fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytis mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Svar

Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi ályktun:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir áhyggjum af framtíð Iðnskólans í Hafnarfirði í ljósi þeirra viðræðna sem nú eru farnar af stað um hugsanlega sameiningu við Tækniskólann. Iðnskólinn hefur mikilvægu hlutverki að gegna í skólasamfélaginu í Hafnarfirði og þjónar ekki einungis þeim fjölda hafnfirskra ungmenna sem þar stundar nám heldur einnig nemendum annars staðar að af höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggur þunga áherslu á mikilvægi fjölbreytts framhaldsnáms, og þá ekki síst iðnnáms, í bæjarfélaginu og óskar eftir upplýsingum og samráði um framtíð Iðnskólans í Hafnarfirði. Bæjarstjórn leggur áherslu á að starfsemi Iðnskólans í Hafnarfirði verði áfram í bænum."

Þá tók Adda María Jóhannsdóttir einnig til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framkomna ályktun.