Austurgata, klettur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 554
25. mars, 2015
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur ábending að klettur sem stendur á lóð Fríkirkjunnar við Austurgötu væri að klofna og brotið sig fram á bílastæði sem þarna er. Þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir á lóð nr. 22 við Austurgötu og Strandgötu er möguleiki á að þetta brot gæti verið í tengslum við það.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir lóðarhöfum og verktökum að þarna gæti verið hætta á ferð og óskar eftir því að þeir bregðist við erindinu.