Menningar- og ferðamálanefnd - 241
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3403
26. mars, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 13.3. sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 19.3. 1501451 - Menningarstyrkir 2015 Lagðar fram þær 42 umsóknir sem nefndinni bárust. Farið yfir umsóknir og ákveðið að taka aftur upp á næsta fundi. 19.4. 1503181 - Breyting á vaktafyrirkomulagi og þjónustutíma Bókasafns Hafnarfjarðar. Anna Sigríður Einarsdóttir, forstöðumaður Bókasafnsins, mætti til fundarins og óskaði eftir að fá að breyta þjónustutíma og vaktafyrirkomulagi á föstudögum. Breytingin felur í sér að lokað verður klukkan fimm í stað sjö á föstudögum. Nefndin er sammála tillögunni og vísar áfram til bæjarráðs.