Hringbraut, Suðurbæjarlaug, lóð undir heilsuræktarstöð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3433
6. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar dags. 3. maí sl. var eftirfarandi mál til umfjöllunar og afgreiðsla þess var:
1502476 - Hringbraut, Suðurbæjarlaug, lóð undir heilsuræktarstöð
Tekið fyrir að nýju erindi frá febrúar 2015 en bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu eftir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa í mars 2015. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. apríl.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa og telur ekki unnt að verða við erindinu.
Svar

Bæjarráð staðfestir niðurstöðu skipulags- og byggingaráðs enda ekki um skipulagða byggingalóð að ræða.