Reglur um tekjutengdan afslátt fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1757
9. desember, 2015
Annað
Svar

Bæjarfulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Til máls tók bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti tók við fundarstjórn. Guðlaug Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi tók til máls. Forseti Guðlaug Kristjánsdóttir tók við fundarstjórn. Bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson tekur til máls öðru sinni. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar úr stóli forseta. Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson um fundarstjórn forseta. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar úr stóli forseta. Gunnar Axel Axelsson tekur til máls. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar úr stóli forseta. Gunnar Axel Axelsson tekur til máls.
Gert fundarhlé kl. 18:00, fundur hefst aftur kl. 18:18.
Bæjarstjórn leggur fram sameiginlega svohljóðandi tillögu um reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorku- lífeyrisþegum í Hafnarfirði 2016:
1. gr.
Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Hafnarfirði er veittur afsláttur af fasteignaskatti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr.
Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Hafnarfirði sem búa í eigin íbúð og
a) eru 67 ára á árinu eða eldri
b) hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2016. Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi.
c) hafa ekki leigutekjur af viðkomandi húsnæði
d) hafa ekki fullvinnandi einstakling/einstaklinga aðra en maka búsetta á heimilinu.
Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi sannarlega býr í.
3. gr.
Hjón og fólk í skráðri sambúð fær fullan afslátt þó einungis annar aðilinn uppfylli skilyrði 2. gr. Ef um fleiri en einn íbúðareiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði 1. mgr., er veittur afsláttur til þeirra sem uppfylla skilyrði 2. gr., í samræmi við eignarhluta þeirra.
Verði slit á hjónabandi eða sambúð þá eiga aðilar máls rétt á öðru hvoru eftirtöldu frá og með þeim tíma sem lögskilnaður eða sambúðarslit eru skráð.
a. Að njóta óbreytts afsláttar út álagningarárið óski þeir þess.
b. Að vera meðhöndlaðir sem einstaklingar frá og með þeim tíma óski þeir þess, enda geti þeir með fullnægjandi hætti sýnt aðgreindar sértekjur sínar sbr. 4. gr.
4. gr.
Aflsláttur er tekjutengdur. Afsláttur er hlutfallslegur og miðast við tekjur síðastliðins árs samkvæmt skattframtali. Við útreikning afsláttar í upphafi árs 2016 er stuðst við skattaframtal ársins 2014 en afslátturinn er síðan endurskoðaður í ágúst 2016 eftir að skattaframtal ársins 2015 liggur fyrir. Leiði endurskoðunin til breytinga á afsæltti þá breytist hann vegna þeirra greiðslana sem eftir eru á árinu. Ekki er endurreiknað vegna greiðslna til og með ágúst. Til tekna teljast bæði launatekjur (reitur 2.7. á skattframtali) og fjármagntekjur (reitur 3.10. á skattframta). Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna fólks í skráðri sambúð.
Tekjumörk vegna afsláttarins 2016 eru eftirfarandi (miðað er við tekjur ársins 2014 til og með águst 2016 og tekjur 2015 eftir það):
Tekjur einstaklinga Tekjur hjóna/sambýlisfólks
Afsláttur Frá Til Afsláttur Frá Til
100 % 0 2.990.000 100 % 0 4.174.000
75% 2.990.001 3.392.000 75 % 4.174.001 4.634.000
50 % 3.392.001 3.680.000 50% 4.634.001 5.036.000
25% 3.680.001 3.909.000 25% 5.036.001 5.381.000
5. gr.
Hafi orðið veruleg breyting á högum umsækjanda er heimilt að víkja frá 2. gr. þessara reglna varðandi búsetu í íbúð og viðmið um tekjumörk sl. árs.og vegna andláts maka
Hér er einkum átt við sérstök tilvik, s.s. :
a) Þegar maki hefur fallið frá á árinu og tekjur lækkað verulega
b) Ef um skyndilega örorku er að ræða sem hefur veruleg áhrif til lækkunar tekna.
6. gr.
Tekjumörk breytast árlega í janúar í samræmi við launavísitölu viðmiðunarárs (í fyrsta skipti er viðmiðunarárið 2014).
Samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.