Sérstakar húsaleigubætur 2015
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1740
18. febrúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð FJÖH frá 13.febr. sl. Til fundarins mættu Atli Þórsson rekstrarstjóri og Guðríður Guðmundsdóttir lögmaður. Fjölskylduráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar dregur til baka að sinni ákvörðun um breytingu á sérstökum húsaleigubótum sem samþykkt var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 þann 9. desember síðastliðinn."
Fjölskylduráð samþykkir að taka til ítarlegrar endurskoðunar fyrirkomulag á sérstökum húsaleigubótum. Farið verður yfir reglur og fjárhæðir sem um sérstakar húsaleigubætur gilda og hvort tveggja skoðað aftur í tímann, meðal annars hvað það varðar til hverra rétturinn til þessa fjárstuðnings tekur. Við skoðunina verður horft til samanburðar á umgjörð sérstakra húsaleigubóta milli sveitarfélaga, þar sem kjör í Hafnarfirði eru borin saman við sambærileg sveitarfélög. Miða skal við að niðurstaða liggi fyrir þegar rekstrarúttekt á sveitarfélaginu verður kynnt eða eigi síðar en í lok apríl 2015.
Svar

Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls og tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan, Guðlaug Kristjánsdóttir tók síðan við stjórn fundarins að nýju.

Gunnar Axel Axelsson tók þá til máls og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við fyrirliggjandi tillögu:
"Bæjarstjórnar áréttar að reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur sem bæjarstjórn staðfesti þann 22. janúar 2014 skuli vera óbreyttar"

Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari og tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari, Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók einnig til máls, Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari og tók 2. varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svarað andsvari, Guðlaug Kristjánsdóttir tók síðan við stjórn fundarins að nýju.

Helga Ingólfsdóttir tók síðan til máls, Guðrún Ágústa Guðmundsdótir kom að andsvari.

Gunnar Axel Axelsson tók þessu næst til máls öðru sinni, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Guðlaug Kristjánsdóttir kom einnig að andsvari við upphaflegri ræðu Gunnars Axels Axelssonar og tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan.

Adda María Jóhannsdóttir tók þá til máls, Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari og tók 2. varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók þessu næst tl máls.

Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju.

Gert var stutt fundarhlé og að því loknu var gengið til atkvæðagreiðslur um fyrirliggjandi tillögur.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna fundarskapa sem og Kristinn Andersen, bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir og Gunnar Axel Axelsson.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar felldi breytingartillögu þá sem Gunnar Axel Axelsson lagði fram með 7 atkvæðum gegn 4.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu fjölskylduráð með 11 samhljóða atkvæðum.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.

Gunnar Axel Axelsson gerði einnig grein fyrir atkvæði sínum og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs:
"Upprunalega tillagan sem hér er lögð fram er ekki til þess fallin að skýra þann rétt sem íbúar eiga til sérstakra húsaleigubóta, enda gerir hún ráð fyrir að dregin sé til baka ákvörðun sem erfitt er að sýna fram á að bæjarstjórn hafi í reynd tekið.

Um áramót var framkvæmd sérstakra húsaleigubóta breytt hjá Hafnarfjarðarbæ án þess að fyrir lægi skýr samþykkt bæjarstjórnar um breytingar á gildandi reglum þar um. Engin tillaga um breytingar á reglunum hefur heldur verið lögð fram, hvorki í fjölskylduráði né bæjarstjórn. Þær reglur sem fjölskylduráð samþykkti 19. desember 2013 og staðfestar voru af bæjarstjórn 22. janúar 2014 eru því að mati fulltrúa Samfylkingar og VG enn í fullu gildi og eðlilegt að bæjarstjórn árétti að framkvæmdin skuli taka mið af þeim og þeim einstaklingum sem urðu fyrir skerðingu um síðustu mánaðarmót verði endurgreitt í samræmi við þær reglur."

Gert var stutt fundarhlé.

Helga Ingólfsdóttir kom að eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar:
"Með tillögu fjölskylduráðs sem hér hefur verið samþykkt er felld úr gildi ákvörðun um breytingu á viðmiðunarfjárhæð sérstakra húsaleigubóta sem tók gildi 1. Janúar 2015
Málið verður unnið áfram í sátt við hlutaðeigendur í samræmi við bókun fjölskylduráðs sem samþykkt af fulltrúum allra flokka í ráðinu."