Hafnarstjórn - 1466
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3400
12. febrúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 4.2.sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 29.1. 1405031 - Óseyrarbraut 24, lóðarleigusamningur Tekin fyrir krafa Lýsingar hf um endurgreiðslu hluta lóðagjalda. Hafnarstjórn hafnar kröfu Lýsingar hf á þeim forsendum að Lýsing hf. var ekki upphaflegur lóðarhafi. 29.2. 1405032 - Óseyrarbraut 26, lóðarleigusamningur Tekin fyrir krafa Lýsingar hf um endurgreiðslu hluta lóðagjalda. Hafnarstjórn hafnar kröfu Lýsingar hf á þeim forsendum að Lýsing hf. var ekki upphaflegur lóðarhafi. 29.3. 15011099 - Ljósmál - heimildarmynd um sögu vita á Íslandi Tekin fyrir ósk Ljósmáls um styrk til heimildarmyndargerðar um vita á Íslandi Hafnarstjórn getur ekki orðið við erindinu. 29.4. 1501433 - Hafnamál við Faxaflóa, Faxaflóahafnir Hafnarstjóri fór yfir og kynnti niðurstöður á athugun valkosta fyrir framtíðarhöfn við Faxaflóa sunnanverðan, frá 2013 Málinu frestað.