Klukkuvellir 1, deiliskipulagsbreyting
Klukkuvellir 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 373
16. júní, 2015
Annað
Fyrirspurn
Ástak ehf. sækir 22.1.2015 um deiliskipulagsbreytingu á Klukkuvöllum 1, breyting á lóð og fjölgun um 1.íbúð, samkvæmt teikningum Jóns Grétars Ólafssonar dagsettar 21.1.2015. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst í samræmi við 43. gr. laga nr. 123/2010. Athugasemd barst. Nýr uppdráttur barst 09.06.2015.
Svar

Brugðist hefur verið við athugasemd varðandi sorpgeymslur. Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulags- og byggingarsviðs, samþykkir skipulagið með þeirri breytingu og að málinu verði lokið í samræmi við 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tilögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Klukkuvalla 1 samkvæmt uppdrætti Jóns Grétars Ólafssonar dags. 09.06.2015 og að málinu verði lokið samkvæmt 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010."