Stapahraun 7-9 skipting lóðar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1846
29. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
10.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 7.apríl sl. Tekið fyrir erindi lóðarfélagsins að Stapahrauni 7-9, þar sem óskað er eftir því að lóðinni verði skipt upp í tvær lóðir þ.e.a.s. Stapahraun 7 og Staðahraun 9. Erindinu fylgir samþykki lóðarfélagsins. Lögð fram tillaga að skiptingu lóðarinnar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir skiptingu lóðarinnar í tvær samkvæmt framlagðri tillögu og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn. Athygli lóðarfélagsins er vakin á því að breyta þarf eignaskiptayfirlýsingu, skráningu, lóðarleigusamning o.fl.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.