Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagnir frá Klukkutorgi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 547
4. febrúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Örn Guðmundsson VSB verkfræðistofu sækir um framkvæmdaleyfi f.h. HS Veitna, Gagnaveitu Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur fyrir lagnir rá Klukkutorgi að gatnamótum Álfhellu og Breiðhellu. Umsögn Umhverfis- og framkvæmdasviðs liggur fyrir.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir framkvæmdaleyfið í samræmi við 4. grein samþykktar um afgreiðslur skipulagsfulltrúans í Hafnarfirði, reglugerð nr. 774/2005 sem samþykkt var af félagsmálaráðuneytinu.
Leyfið er þó gefið með því skilyrði að ef lagnir veitna sem þarna verða eru fyrir þegar kemur að gatnaframkvæmdum á svæðinu þá munu veitur bera allan kostnað að færslu og breytingum á lögnum. Bent er á að sækja þarf um leyfi Vegagerðarinnar áður en að framkvæmd kemur.