Flensborgarhöfn starfshópur 2014-2015
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 606
4. október, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi hafnarstjórnar þann 30.09.2016 var eftirfarandi samþykkt: Hafnarstjórn samþykkir að skipaður verði 5 manna sameiginlegur starfshópur með skipulags- og byggingaráði til að vinna að nánari undirbúningi og útfærslu á samkeppnislýsingu með hliðsjón af nýlega samþykktri skipulagslýsingu af svæðinu. Í starfshópnum eigi sæti 2 fulltrúar Hafnarstjórnar og 3 frá skipulags- og byggingaráði. Með hópnum starfi hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi. Samþykkt að fulltrúar hafnarstjórnar verði Unnur Lára Bryde og Gylfi Ingvarsson. Lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 13.09.2016.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögu hafnarstjórnar frá 30. sept. s.l.
Samþykkt að fulltrúar skipulags- og byggingarráðs verði:
Ólafur Ingi Tómasson
Borghildur Sturludóttir
Júlíus Andri Þórðarson