Flensborgarhöfn starfshópur 2014-2015
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1763
13. apríl, 2016
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. Áður á dagskrá 17.febr. og 16.mars sl. Lögð fram drög að lýsingu á notkun og skipulagi hafnarsvæðisins. Verkefnisstjóri mætti á fundinn og fór yfir lýsingu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi lýsingu fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem fram komu á fundinum um stækkun svæðisins að Stapagötu og leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lýsingu að breyttri notkun og skipulagi hafnarsvæðisins í samræmi við fyrirliggjandi gögn."
Svar

Til máls tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Við fundarstjórn tekur 1. varaforseti Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir.

Við fundarstjórn tekur forseti Guðlaug Kristjánsdóttir.

Til máls tekur bæjarfulltrúi Ófeigur Friðriksson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir.

Samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum. Bæjarfulltrúi Sverrir Garðarsson situr hjá.