Fundargerðir 2015, til kynningar í bæjarstjórn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1744
29. apríl, 2015
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð fjölskylduráðs frá 24.apríl sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 30.mars sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 20.apríl sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22.apríl. sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 10.apríl sl. b. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 11.mars sl. Fundargerð bæjarráðs frá 24.apríl sl. a. Fundargerð stjórnar Háagranda frá 16.apríl sl. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 8.apríl sl. c. Fundargerð hafnarstjórnar frá 30.mars sl. d. Fundargerðir stjórnar SSH frá 12.jan., 9.febr., 2. og 6.mars sl. Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 13.apríl sl. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 13. og 27.mars sl.
Svar

Adda María Jóhannsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 4. dagskrárliðar, Staða innritunar leikskóla og 12. dagskrárliðar, Fækkun barna á leikskólaaldri, í fundargerðar fræðsluráð frá 20. apríl sl.

Rósa Guðbjartsdóttir tók síðan til máls vegna sama máls, Adda María Jóhannsdóttir kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur.

Einar Birkir Einarsson tók einnig máls vegna sömu liða og þá Gunnar Axels Axelsson, Einar Birkir Einarsson kom að andsvari við ræðu Gunnars Axels Axelssonar, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari.

Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls vegna sömu liða, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari, Adda María Jóhannsdóttir kom einnig að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur.

Guðlaug Kristjánsdóttir tók þessu næst til máls einnig vegna sömu liða og tók 2. varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan, Adda María Jóhannsdóttir kom að andsvari, Guðlaug Kristjánsdóttir svaraði andsvari og tók síðan við stjórn fundarins að nýju.

Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson kvaddi sér hljóðs vegna 14. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 24. apríl sl., Lánasamningar Hafnarfjarðar 2015, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari, bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson svaraði andsvari, Adda María Jóhannsdóttir kom einnig að andsvari við ræðu bæjarstjóra Haraldar L. Haraldssonar.

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna 8. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 20. apríl sl., Hinseiginfræðsla í grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar, þá einnig Adda María Jóhannsdóttir vegna sama máls, bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson kom að andsvari við ræðu Öddu Maríu Jóhannsdóttur, Adda María Jóhannsdóttir svaraði andsvari.

Guðlaug Kristjánsdóttir tók einnig til máls vegna sömu liða og að undan greinir og tók 2. varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan, Adda María Jóhannsdóttir kom að andsvari.

Guðlaug Kristjánsdóttir tók síðan við stjórn fundarins að nýju.

Fleiri kvöddu sér hljóðs undir liðnum Fundargerðir 2015 til kynningar.

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna fundarstjórnar forseta. Rósa Guðbjartsdótir tók einnig til máls og þá Gunnar Axel Axelsson í tvígang,
Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Gunnars Axels Axelssonar.
Kristinn Andersen tók einnig til máls og síðan Gunnar Axel Axelsson.