Bjarkavellir 3, leikskóli, byggingarleyfi
Bjarkavellir 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 546
28. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Umhverfis- og framkvæmdasvið Hafnarfjarðar sækir 22.12.2014 að reisa 4.deilda leikskóla sem verður byggður á gömlum grunni samkvæmt teikningum Sigurlaugar Sigurjónsdóttur dagsettar 25.11.2014. Ásamt stimpli 27.11.14 frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, stimpli 27.11.14 frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.Brunavarnir yfirfarnar af Óskari Þorsteinssyni hjá Mannviti hf. Nýjar teikningar bárust 13.01.15.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010 og með tilvísan í bókun Skipulags- og byggingarráðs 27.01.15. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-5 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
5. Skráð hefur verið í gagnasafn Mannvirkjastofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði laga þessara.