Betri Hafnarfjörður og íbúakosningar, tillaga SV12, Tillaga úr bæjastjórn 10.des. sl.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3398
29. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju tillaga Samflyklingar og Vinstri grænna úr bæjarstjórn 10. desember sl. varðandi þróun verkefnisins Betri Hafnarfjörður og hagnýtingu nýjustu lausna í upplýsingatækni og aðferða við framkvæmd íbúakosninga. Upplýsingafulltrúi og vefstjóri mættu á fundinn og gerðu grein fyrir framkvæmd og stöðu verkefnisins Betri Hafnarfjörður.
Svar

Bæjarráð samþykkti að fela upplýsingafulltrúa og vefstjóra að leggja fram hugmyndir að frekari þróun verkefnisins í samræmi við umræður á fundinum.