Frystigeymsla
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1737
7. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
1. liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 18.des. sl. Lagt fram samkomulag milli Hafnarfjarðarhafnar og Eimskip Íslands hf um grundun byggingarreits fyrir frystigeymslu á Óseyrarbraut 22, á grundvelli lóðaleigusamnings um lóðina frá 4. nóvember 2003. Samningurinn er undirritaður 18. desember 2014 með fyrirvara um staðfestingu hafnarstjórnar og bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Hafnarstjórn samþykkir samninginn.
Svar

Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson tók til máls,

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum fyrirliggjandi samning með fyrirvara um að framkvæmdir fari á stað á árinu 2015 að öðru kosti falli samningurinn úr gildi.