Álagning sveitarsjóðsgjalda 2015
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1736
10. desember, 2014
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð BÆJH frá 4.des. sl. Laðgar fram tillögur að álagningu úrsvars og fasteignagjalda árið 2015. Einnig tillaga að tekjumörkum vegna afsláttar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð vísar tillögum að álagningu útsvars og fasteignagjalda til bæjarstjórnar.
Lagðar fram eftirfarandi tillögur:
Tillaga BÆST 1736 - 6.01 Útsvar: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að útsvarshlutfall árið 2015 verði 14,52% með fyrirvara um að frumvarp um hækkun hámarksútsvars verði að lögum.
Tillaga BÆST 1736 - 6.02 Fasteignaskattur og lóðarleiga: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að álögð fasteignagjöld ársins 2015 verði eftirfarandi:
Fasteignaskattur sem reiknast af heildarfasteignamati húsa og lóða. A- skattflokkur, íbúðarhús, hesthús og sumarbústaðir 0,28% B- skattflokkur, opinberar byggingar sbr. reglugerð 1160/2005 1,32% C- skattflokkur, atvinnuhúsnæði, 1,65%
Lóðarleiga sem reiknast af fasteignamati lóðar: A- skattflokkur, íbúðarhús, hesthús og sumarbústaðir 0,4% B- skattflokkur, opinberar byggingar sbr. reglugerð 1160/2005 1,30% C- skattflokkur, atvinnuhúsnæði, 1,30%
Álagning byggir á fasteignamati eigna samkvæmt Fasteignaskrá Íslands 31. desember 2014.
Almennir gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2015 eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 15. janúar 2015 en eftir það 1. hvers mánaðar frá mars til nóvember og eindagi 30 dögum síðar. Gjalddagi fasteignagjalda að lægri fjárhæð en 25.000 kr. er 1. febrúar 2015. Gjalddagar fasteignagjalda sem lögð eru á nýjar eignir á árinu 2015 eru jafn margir og almennu gjalddagarnir sem eftir eru ársins þegar álagningin fer fram. Fasteignaskattur og lóðarleiga er lögð á með heimild í lögum nr. 5/1995 með síðari breytingum. Gjaldendur sem greiða fasteignagjöld ársins að fullu fyrir 16. febrúar 2015 fá 5% staðgreiðsluafslátt.
Tillaga BÆST 1736 - 6.03 Tekjumörk aflsáttar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti að tekjumörk afsláttar af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrirþegum vegna ársins 2015 verði eftirfarandi:
Tekjur einstaklinga 2014 100% afsláttur, 0 - 2.831.000 kr. 75% afsláttur, 2.831.001 - 3.212.000 kr. 50% afsláttur, 3.212.001 - 3.485.000 kr. 25% afsláttur, 3.485.001 ? 3.372.000 kr.
Tekjur hjóna 2014 100% afsláttur, 0 - 3.953.000 kr. 75% afsláttur, 3.953.001 - 4.388.000 kr. 50% afsláttur, 4.388.001 - 4.769.001 kr. 25% afsláttur, 4.769.001 - 5.096.000 kr.
Reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrirþegum í Hafnarfirði sem samþykktar voru í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 5. desember 2012 uppfærast í samræmi við þetta.
Svar

Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson tók til máls og kynnti fyrirliggjandi tillögur.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti tillögu BÆST 1736 - 6.01, Úsvar með 11 samhljóð atkvæðum.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti tillögu BÆST 1736 - 6.02, Fasteignaskattur og lóðarleiga með 11 samhljóða atkvæðum

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sammþykkti tillögu BÆST 1736 - 6.03 Tekjumörk aflsáttar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega með 11 samhljóða atkvæðum.

Jafnframt samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar með 11 samhljóða atkvæðum endurskoðaðar reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrirþega, fylgiskjal merkt BÆST 1736 - 6.04.