Hafnarstjórn - 1461
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3397
15. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 9. desember 2014.
Svar

20.1. 1412115 - Frystigeymsla Bæjarstjóri og hafnarstjóri skýrðu frá gangi mála varðandi áform Eimskip um byggingu frystigeymslu í Hafnarfirði. Kynnt. 20.2. 1410395 - Fyrirkomulag skrifstofu hafnarsjóðs Breytingar á færslu bókhalds og launabókhalds ásamt tímaskráningu. Hafnarstjórn samþykkir að bókhald og launabókhald hafnarinnar verði fært í bókhalds- og launakerfi Hafnarfjarðarbæjar.
Tekin verði upp notkun stimpilklukku eins og hjá öðrum stofunum bæjarins.
Breytingarnar taki gildi um áramót. 20.3. 1208466 - Viðlegugjöld flotkvía, viðræður. Tekið fyrir erindi Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf, varðandi hafnargjöld flotkvía dagsett 7. apríl 2014. Hafnarstjórn hafnar erindinu.
Annað efni erindisins verður skoðað nánar. 20.4. 1407067 - Bláfáni fyrir Flensborgarhöfn Lagt fram erindi Landverndar dagsett 3. desember 2014 um Bláfánann fyrir Flensborgarhöfn Hafnarstjórn frestar málefninu og skoðar í samhengi við endurskipulag Flensborgarhafnarsvæðisins.