Kaplakriki,mhl 11,Miðasöluhús
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 543
7. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Sótt er 27.11.14 um byggingarleyfi á nýju miðasöluhúsi við Kaplakrika,tvö skyggni byggð við núverandi hús við aðalinngang og félagsaðstöðu, ásamt steyptum vegg á lóð til að mynda skjól á reiðhjólastæði. Samkvæmt teikningum Sigurðar Einarsonar dag.25.11.14.Nýjar teikningar bárust 19.12.14 með stimpli Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins. Enn fremur er sótt um takmarkað byggingarleyfi fyrir stoðvegg og sökkla.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 2. lið 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir takmarkað byggingarleyfi þegar þegar skilyrði 3-5 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt. Skriflegt byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-5 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt, m.a. lagfærð skráningartafla og uppdrættir samræmdir skv. meðfylgjandi athugasemdum:
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
5. Skráð hefur verið í gagnasafn Mannvirkjastofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði laga þessara.