Borgarlína
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 646
3. apríl, 2018
Samþykkt
‹ 7
8
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að aðalskipulagsbreytingu vegna borgarlínu á fundi sínum þann 9. feb. s.l. Lögð fram til kynningar drög að breyttu aðalskipulagi. Jafnframt lögð fram lokafgreiðsla á breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins dags. 6. mars 2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir lokaafgreiðslu á breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins dags. 6. mars 2018 og vísar erindinu til bæjarstjórnar sbr. 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna að breytingu á greinagerð Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 m.t.t. fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagsbreytingu.