Lónsbraut 48, umsókn um lóð
Lónsbraut 48
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 538
26. nóvember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Hugi Freyr Valsson óskar eftir í vefumsókn dags. 10. nóvember 2014 um einbýlishúsalóð við Lónsbraut 48 í Hafnarfirði. Erindi var áður á fundi Bæjarráðs þann 20. nóvember sl. og var óskað eftir umsögn skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur til við bæjarráð að hafna erindinu þar sem það samræmist ekki gildandi deiliskipulagi. Á lóðinni skal vera bátaskýli en ekki einbýlishús.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 190969 → skrá.is
Hnitnúmer: 10125544